|
24.08.2010 07:36:42 / Lísa
I Kopavogi er 3.herb 75 m2 íbúð til leigu, 1 rumgott svefnherbergi (gott skapaplass) og 1 barnaherbergi. Ibudin er leigd med husgøgnum, heimilistækjum og bordbunadi og er bjørt tar sem hun er endaibud. Ibudin er stadsett a rólegum stad vid fossvoginn tar sem mikid er um hjolreida og gøngustiga ibuar einnig reglusamir og rolegir. Ibudin er midsvædis eda um 25 min ad ganga i Smaralind og Kringluna og um 30 min ad ganga i Nautholsvikina.
leigist adeins reglusömu ábyrgu fólki (medmæli) reykingar eru ekki leyfðar i ibud verð 120.þ fyrir utan rafmagn og hussjod,- (leigusamningur/uppgefid)
Hussjodur 13.500 (m.a. er greitt er ur hussjodi trif a sameign, ruslageymslu og gardslatt) Eg var ad borga um 3.000 kr i rafmagn en var ekki mikid heima
Er laus med 2-3ja daga fyrirvara
nánari uppl. a netfangid torgerdur_64@hotmail.com
»
15.08.2010 14:23:49 / Lísa
íbúð til leigu í Kópavogi (2 svefnherbergi) leigist með húsgögnum, raftækjum og borðbúnaði..nánari uppl. á netfangið torgerdur_64@hotmail.com
»
06.07.2010 23:43:44 / Lísa
....Nýjar myndir af málverkum á myndlistarsíðuna mína... endilega skoða. kv Lísa
»
15.06.2010 23:17:22 / Lísa
Jæja... er ekki kominn tími á blogg.
Ég er orðin fín af brjósklosinu. Gat ekki byrjað að vinna fyrr en 1 febrúar.. svo þetta voru fimm langir mánuðir frá vinnu. Það sem ég tel að hafi læknað mig var að ganga og ganga og ganga.. helst í þúfum, ekki á harðri stétt. Ég hætti hjá sjúkraþjálfara, kírópraktor og nálastungum og eftir það gerðust hlutirnir hratt. Þannig að ef þú ert með brjósklos þá skaltu ganga. Kaupa þér góða skó og skella þér út. Ég gat bara sofið á hliðinni.. varð mér úti um langa spónaplötu sem ég svaf á í nokkrar vikur, og þá er nauðsynlegt að vera með tvo auka kodda. Einn sem settur er við mittið og annar á milli fótanna (betra að hafa hann stóran, en mittiskoddann lítinn)
Ég hugsa mikið um bakið í dag.. passa að lyfta engu þungu, ganga upprétt, sit ekki mikið og ég sef ennþá með aukakoddana, þeir eiga eftir að fylgja mér um ókomna tíð. Ég nota mittiskoddann líka ef ég sef á maganum, þá set ég hann undir magann og þá get ég sofið án þess að fá verk í bakið.. (ég gat ekki sofið á maganum áður, án þess að fá í bakið.)
Svo nú finnst mér ég bara svífa í gegnum lífið .. verkjalaus, en ég hafði verið slæm í baki og mjöðm síðustu 4-5 ár.
En nóg um þetta.. Ég sagði ykkur frá því þegar við komumst að því að mamma ætti systur úti í Oklahoma. En hún og dóttir hennar heimsóttu okkur í þessum mánuði. Það var mjög gaman og við gerðum margt. M.a fórum við í Bláa Lónið, skoðuðum Skógarfoss og Seljalandsfoss, fórum í Ingólfshöfða, og margt fleira. Þær voru úrvinda eftir ferðina til Íslands.. og hlökkuðu til að fara heim og SOFA.. þær vildu nefnilega ekki sofa á meðan við vorum á keyrslu milli landshluta, því þær vildu ekki missa af neinu. Svo er planið að fara og heimsækja þær á næsta ári.
Kristófer fermdist í síðasta mánuði, það var bara æðislegt. Hann keypti sér krossara í vor og er búinn að vera duglegur á honum.. hann byrjaði að vinna í unglingavinnunni á mánudag og finnst bara ágætt. Stelpurnar eru að vinna á gistiheimilunum hjá Halldóri Sævari og fá fín laun þar.
jæja.. það er ekki gaman að lesa of löng blogg... bæjó kveðja Lísa skvísa.
»
27.11.2009 14:12:50 / Lísa
jæja.. ég er á fullu hjá sjúkraþjálfara.. og fór í nálastungur á miðvikudaginn.. svo er ég hjá kírópraktor.. mig langar líka að prófa höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð. bara prófa sem flest og ath hvort ég fari ekki að lagast.. ég er ennþá svolítið skökk.. en ekki nærri eins mikið og ég var.. Svo fór ég að vinna í gær, en bara í um 1 1/2 - 2 tíma.. ætla svo að lengja það smátt og smátt. Ég ætla að vera orðin góð af brjósklosinu fyrir jól... búin að ákveða það.. og ekkert múður. punktur og basta.
kv.Lísa
»
19.10.2009 15:50:51 / Lísa
Í dag er 30 okt.. jeminn.. jólin eru alveg að koma..
það er aldeilis blíða úti... nú væri ég til í að grilla, kannski maður skelli bara á nýja grillið í kvöld og bjóði liðinu í mat...
nú eru akkúrat liðnar 8 vikur síðan ég lagðist í rúmið vegna brjósklossins og ég er ekki enn orðin góð, þetta hefur tekið agalega langan tíma.. vonandi verð ég samt alveg laus við þetta í desember... svo langar mig líka að fara að fara komast í vinnuna og hitta kellurnar mínar þar.. og kallana... ég hef nú samt verið dugleg að heimsækja þau, og það hressir mann bara.
sí jú
Lísa
»
17.10.2009 18:54:27 / Lísa
voru aðbúa til pitsu,Stella búin að taka eldhúsið alveg í gegn.. og tók til í öllu húsinu á fimmtudag.. og Fjóla hefur gert það líka. vonandi halda þær þessu áfram þegar ég er orðin hress... ég er búin að elda mat ca 4 sinnum síðustu 6 vikur,, þær hafa alveg séð um þetta. mjög duglegar.
kv Lísa
»
17.10.2009 13:41:57 / Lísa
Ég fór í heitu pottana í Hoffelli í gær, með þremur konum.. Það var æðislegt. vatnið í pottunum er talið hafa einhverskonar lækningamátt.. t.d. fyrir psoriasis sjúklinga. Og ég finn núna hvað húðin er mjúk viðkomu. Ég fer pottþétt fljótt aftur.
Pottarnir eru úti undir berum himni.. undir klettum. Þar er lýsing og hægt að kveikja á kertum út um allt. Við vorum með konfekt, snakk og drykki með okkur... Þið verðið að prófa...
kv Lísa
»
16.10.2009 11:46:12 / Lísa
Ég ætla að fara stuttan göngutúr á hækjunum í dag þegar ég er búin hjá sjúkraþjálfaranum... Mikið hlakka ég til þegar ég er orðin bein í baki aftur og get farið að gera ALLT sem mig langar...
»
14.10.2009 08:54:46 / Lísa
ætla að vera hress og kát í dag.. og láta þetta brjósklos fara. Versnaði í gær eftir tímann hjá sjúkraþjálfara.. svaf ekki vel.. en nú bara .. burtu með verkina. Ætla að skella mér í sturtu bráðum og ef ég treysti mér ætla ég að labba með Katrínu Birnu og kisunni hennar niður Höfðaveginn.  Ég er að lesa bækurnar um kvenspæjarastofu númer eitt, þær eru bara alveg ágætar, er að byrja á þriðju bókinni núna. það er bara blíða dag eftir dag.. bless Lísa
»
13.10.2009 11:59:45 / Lísa
góður dagur.. , og ég að fara í sjúkraþjálfun.. er ekki búin að vera úti á meðal fólks í nokkra daga.
og ég var að heyra jólaauglýsingu í útvarpinu... það á að banna þetta..
»
12.10.2009 18:54:57 / Lísa
 Á myndlistarnámskeiði.. ég og Rannveig...
»
12.10.2009 18:52:15 / Lísa
 Við systurnar..
»
12.10.2009 18:46:27 / Lísa
Eru margir þarna úti sem eru að blogga ? Ég veit að allir vinir mínir eru hættir.... sem er synd.. því þetta er bara virkilega gaman.
kveðja.. Lísa
»
12.10.2009 15:58:10 / Lísa
Ég ligg í rúminu og læt mér leiðast  búin að lesa allar bækurnar og hugsa um .. jah.... er búin að hugsa svo mikið síðustu vikur að það hálfa væri nóg. Ef þið eruð ekki búin að lesa bókina Á ég að gæta systur minnar.. skuluð þið drífa í því.. hún er mjög góð.. Helga Pétursd og Jóhanna Dagmar komu með blómvönd og baileys handa mér áðan, svo sætar í sér.. báðar búnar að fá brjósklos.. svo þær vita alveg hvað ég er að ganga í gegnum. ætla að fara að lesa ritgerð um Júlíus Caesar sem frumburðurinn var að skrifa.. blessó.. Lísa brjósk.
»
Síður: 1 2 3 ... 34
|